Þægileg blússa frá danska merkinu Fransa. Efnið er 80% viskósa og 20% polýamíð sem er mjúkt og fellur einstaklega vel. Fransa er danskt tískumerki sem leggur áherslu á litríkan og áreynslulausan hversdagsfatnað fyrir konur á öllum aldri. Fæst í stærðum S-XXL. Fæst í litunum blátt/hvítt og svart/grænt/lill. Þægileg og klæðileg flík fyrir hvunndaginn jafnt sem betri stundir.


















